Panta kynningu

Rafrænt útibú fyrir apótekið þitt

Medio auðveldar fólki að kaupa lyfseðilsskyld lyf rafrænt og eykur valmöguleika í afhendingu. Fólk fær skilaboð þegar læknir sendir lyfseðil í lyfjagátt, það getur þá greitt fyrir og valið afgreiðslumáta um leið.  Fólk getur valið um að sækja í ákveðið apótek, fá sent heim eða sótt á pósthús eða póstbox.

Tilgangur Kaktus með smíði á Medio, er að gera öllum apótekum, stórum sem smáum, kleift að selja lyf á netinu – viðskiptavinum til þæginda.

Einföldun á flóknum ferlum

Medio styttir bæði lyfjafræðingum og notendum sporin. Þegar læknir hefur skrifað upp á lyfseðil fer hann inn í lyfseðlagátt landlæknis.

  • Við innskráningu notanda sækir Medio lyfseðla beint úr lyfseðlagátt.
  • Verð á lyfjum eru síðan sótt til Sjúkratrygginga Íslands og birt notanda.
  • Viðskiptavinir geta því pantað lyfseðla í kerfinu hnökralaust og séð yfirlit yfir pantanir sínar.
  • Lyfjafræðingar geta í framhaldinu afgreitt pantanir í afgreiðslukerfi Medio.
  • Medio sendir sjálfkrafa tilkynningu til notanda þegar pöntun er tilbúin til afhendingar.

Fullbúin vefverslun

Verslunin er bæði notendavæn og söludrifin. Þegar notendur panta vörur þá flæða þær í gegnum Medio og niður í birgðarkerfi. Kerfið gefur því yfirsýn yfir lyfjapantanir og er að fullu sjálfvirkt.

Hið fullkomna stjórnborð

Í stjórnborði Medio ertu með ítarlegt yfirlit yfir stöðu pantana og uppflettingu í lyfjaverðskrá. Sterk aðgangsstýring tryggir að viðkvæm gögn komast ekki í rangar hendur.

Öryggi upplýsinga

Öryggi er grunnstoð Medio og unnið er eftir öllum helstu öryggisstöðlum.
Notast er við rafræna auðkenningu í gegnum island.is og farið er eftir persónuverndarlögum GDPR.

Þróun Medio er unnin af sérfræðingum í hugbúnaðarþróun, sem sérhæfa sig í smíði stærri vefkerfa. Medio er samstarfsverkefni Reiknistofu Apótekanna (RXA) og Kaktus Kreatives.